Skilmálar

Ef þú þarft að skila vörum þá færðu fulla endurgreiðslu ef þú skilar vörunni innan 14 daga og varan er óupptekin og ónotuð. Ef 14 dagar eru liðnir frá kaupum getum við ekki boðið uppá fulla endurgreiðslu né skiptum á vörum. Ef þú ert með spurningar varðandi skil á vörum þá ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið: icelandskincare@gmail.com

Iceland Skincare áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næstu 1-5 daga eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Iceland Skincare ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Iceland Skincare til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Iceland Skincare með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Refunds

If you need to return products, you will receive a full refund if you return the product within 14 days and the product is unoccupied and unused. If 14 days have passed since the purchase, we will not be able to offer a full refund or exchange of goods. If you have any questions regarding the return of products, please do not hesitate to contact us at the email address: icelandskincare@gmail.com

Shopping Cart
Scroll to Top